top of page
B. Árangursrík atvinnuleit.png
Logo 2503 3_edited.jpg

kynnir

Árangursrík atvinnuleit

Lærðu á 90 mínútum að skipuleggja og framkvæma árangursríka atvinnuleit

Ör-námskeið fyrir einstaklinga á öllum aldri sem:

  • ​Eru að ljúka námi og undirbúa sig fyrir atvinnulífið.

  • Eru að koma aftur á vinnumarkað eftir hlé.​

  • Eru í leit að nýjum tækifærum.

  • Eru að glíma við atvinnuleysi.​​

  • Vilja auka forskot sitt á vinnumarkaði.​​​


Á þessu námskeiði lærir þú

  • Að búa til lífsferilsskrá og starfsferilsskrá.

​​​

  • Aðferðir til að viðhalda skjölunum þínum og varðveita þau á skipulegan og aðgengilegan hátt.

​​​

  • Að skipuleggja atvinnuleit eins og vinnu á eigin forsendum, og án þess að vera íþyngjandi.

​​​

  • Að halda utan um atvinnuleitina þína með skipulegum hætti.

​​​

  • Að skrifa markviss kynningarbréf.

​​

  • Að undirbúa þig fyrir atvinnuviðtal og svara ólíkum spurningum sem fram geta komið.

  • Að viðhalda faglegum vinnubrögðum og öðlast virðingu hratt á nýjum vinnustað.

  • Að segja upp starfi á faglegan hátt.

​​


Markmið

 

Markmiðið með þessu námskeiði er að þú lærir að skipuleggja og framkvæma atvinnuleit á árangursríkan hátt. Að námskeiðinu loknu verður þú tilbúinn til að undirbúa og hefja þína atvinnuleit.


Fyrirkomulag

Þetta námskeið er í fórum hlutum sem byggja á fjórum þáttum sem árangursrík atvinnuleit byggir á:

  1. Ferilskrá
    Svarar spurningunni:
    Hvernig get ég skorið mig úr? 

  2. Atvinnuleitin
    Svarar spurningunni: Hvernig finn ég rétta starfið?

  3. Atvinnuviðtal
    Svarar spurningunni:
    Hvernig heilla ég væntanlegan vinnuveitanda?

  4. Nýtt starf 
    Svarar spurningunni: Hvernig tryggi ég öryggi mitt í nýju starfi?

Í hverjum hluta er farið yfir gagnleg verkfæri og aðferðir sem þú getur beitt til að finna réttu svörin við þessum spurningum fyrir þig.

Námskeiðið sjálft tekur um 90 mínútur þar sem farið er ítarlega í hvern hluta og þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga í lok hvers hluta. 

 

Atvinnuleit og undirbúningur hennar tekur lengri tíma og þú munt ekki hafa tíma til að ljúka þeirri vinnu á meðan námskeiðið stendur yfir. Gefðu þér 1-4 vikur í undirbúning fyrir atvinnuleitina eftir að námskeiðinu lýkur og gerðu ráð fyrir að vera virkur í atvinnuleitinni þar til þú hefur verið ráðinn í nýtt starf. Líttu á það þannig að fyrir hvern dag sem fer ekki að einhverjum hluta í atvinnuleit, lengist leit þín að nýju starfi um einn dag því ekkert gerist ef þú gerir ekkert sjálfur.

​​


Skráning

Opnað verður fyrir skráningu á námskeiðið síðla sumars 2025 og verða fyrstu námskeiðin kennd á haustmánuðum 2025. Ef þú vilt fá tilkynningu þegar opnað verður fyrir skráningu, þá geturðu pantað áskrift að fréttabréfi Þjónustuveitunnar*.

​*Þjónustuveitan sendir aðeins út fréttabréf þegar eitthvað sérstakt er að frétta (eins og þegar opnað er fyrir bókanir á nýrri þjónustu), eða að hámarki 1-2 sinnum á ári. ​


Innifalið

​​​

Innifalið í námskeiðinu er:

  • Rauntíma leiðsögn frá leiðbeinanda.

  • Sniðmát fyrir ferilskrá og kynningarbréf  í Word-skjölum.

  • Sýnishorn af ferilskrá og kynningarbréfi í PDF-skjölum.

  • Atvinnuleitarrekill í Excel-skjali.

  • Sýnishorn af uppsagnarbréfi.

  • Listi yfir atvinnuleitarvefi.

  • Listi yfir algengar spurningar í atvinnuviðtölum með dæmum um svör.

  • Ævilangur aðgangur að námsefni og öllum framtíðar uppfærslum.

​​

Heiti - White on Plum.png

býður
 

Rýnihóp Þjónustuveitunnar

frítt prufunámskeið LAUGARDAGINN 28. júní 2025

​​

Fjarfundur í rauntíma:

Markviss starfsferill kl. 11:00 - 12:30

Árangursrík atvinnuleit kl. 13:30 - 15:00

 

Viljir þú prófa frítt prufunámskeið þá þarftu aðeins að skrá þig í Rýnihóp Þjónustuveitunnar, en þátttakendur rýnihópsins fá öðru hvoru boð um að taka þátt í léttum spurningakönnunum eða að prófa nýja þjónustu án endurgjalds.

Þegar þú ert búinn að skrá þig í rýnihópinn, þá smellirðu á hnappinn hér fyrir neðan til að skrá þig á prufunámskeið. Athugaðu að þú getur aðeins prófað annað hvort námskeiðið án endurgjalds. Viljir þú prófa bæði þá stendur þér til boða 50% afsláttur af seinna prufunámskeiðinu.


Innifalið

Innifalið í þessu námskeiði er:

  • Rauntíma leiðsögn frá leiðbeinanda

  • Sniðmát fyrir ferilskrá og kynningarbréf (Word-skjöl)

  • Sýnishorn af ferilskrám og kynningarbréfum (PDF-skjöl)

  • Atvinnuleitarrekill (Excel-skjal)

  • Sýnishorn af uppsagnarbréfi

  • Listi yfir atvinnuleitarvefi

  • Listi yfir algengar spurningar í atvinnuviðtölum með dæmum um góð svör

  • Ævilangur aðgangur að námsefni og öllum framtíðar uppfærslum

A1 Markviss starfsferill.png

Kynntu þér einnig:

 

Fræðsluþjónustan 

Logo 2503 3_edited.jpg

 

er í eigu Þjónustuveitunnar

Heiti og mynd - White on Plum.png

 

Allur réttur áskilinn © 2025 Þjónustuveitan ehf. | kt. 530519-0740 | s. 772-5950 | thjonusta@thjonusta.is

bottom of page