Fyrir veitingastaði, hótel, mötuneyti, leikskóla, grunnskóla, heilbrigðisstofnanir og aðra starfsemi sem geymir matvæli í kæliskápum og þarf að uppfylla kröfur um reglulegt og skráð hitastigseftirlit.
Reglulegt hitastigseftirlit með kælitækjum er ein af forsendum rekstrarleyfis fyrir veitingastaði og önnur fyrirtæki sem meðhöndla matvæli. Þessi vara inniheldur öll skjöl sem þarf til að setja upp og viðhalda skipulögðu hitastigseftirliti með kælitækjum, frá tækjaskrá og daglegri hitastigsskráningu yfir í frávikaskrá og leiðbeiningar. Skjalasettið er tilbúið ferli fyrir hitastigseftirlit sem auðveldar starfsfólki framkvæmd þess og tryggir að viðeigandi gögn séu ávallt til staðar þegar opinberir eftirlitsaðilar koma til að taka út starfsemina.
EY10.261 Hitastigseftirlit KÆLISKÁPAR
- Bls. 1: Hitastigseftirlit Kæliskápar I
- Bls. 2: Frávikaskrá Kæliskápar I
- Bls. 3: Hitastigseftirlit Kæliskápar II
- Bls. 4: Frávikaskrá Kæliskápar I
- Bls. 5: Tækjaskrá Kæliskápa
- Bls. 6: Dæmi um útfyllt eftirlitsblað
- Bls. 7: Dæmi um útfyllta frávikaskrá
- Bls. 8: Dæmi um útfyllta tækjaskrá
- Bls. 9: Leiðbeiningar
Öll skjöl á íslensku og ensku.

