Skjalabúðin
VERSLUN SÉRSMÍÐI VÆNTANLEGT SKILMÁLAR UM SKJALABÚÐINA
Fagleg skjöl. Skýrir ferlar. Minna vesen.
Öll skjöl á íslensku og ensku
Leiðbeiningar um staðlað verklag fylgja
Viðeigandi fylgiskjöl ávallt innifalin
Sjálfvirk afhending um leið og greitt er
Hönnuð til að uppfylla kröfur eftirlitsaðila
Skjölin eru tilbúin til notkunar strax
Væntanlegt
Vörur sem væntanlegar eru í Skjalabúðina
Viðbragðsáætlun
Hjartastopp
Eftirlitsskráning
Ofnæmis- og óþolsvaldar í mat
Viðbragðsáætlun
Netárás
Upplýsingamiðlun
Ofnæmis- og óþolsvaldar í mat
Eyðublað
Neyðarnúmeraskrá
Veggspjald
Segðu frá ofnæmi
Eyðublað
Þjónustunúmeraskrá
Póstlisti
Fáðu tilkynningu þegar nýjar vörur koma inn
Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að smella á "Afskrá" neðst í tölvupósti frá Skjalabúðinni.
Meðferð persónuupplýsinga er skv. persónuverndarstefnu Þjónustuveitunnar.
Gæðatrygging
100% endurgreiðsla ef...

... þú finnur galla í skjali sem merkt er instaDoc:
Hvað er galli í skjali?
-
Innsláttar- og stafsetningarvillur.
-
Punktar og kommur eða önnur merki þar sem þau eiga ekki að vera.
-
Vantar punkta, kommur eða önnur merki þar sem þau eiga að vera.
-
Auð síða í pdf-skjali.
-
Ósamræmi í litum, leturgerð og leturstærð innan skjalsins.
-
Texti klipptur eða troðinn.
-
Töflulínur brotnar eða vantar.
-
Þýðingarvilla eða ósamsvarandi texti milli tungumála innan skjals.
Kynntu þér nánar skilmála og leiðbeiningar um gæðatryggingu ef þú telur þig hafa fundið galla í instaDoc skjali.

Um Skjalabúðina
Tilbúin skjöl og ferlar sem hjálpa þér að uppfylla kröfur og staðla
Skjalabúðin býður úrval af tilbúnum skjölum með leiðbeiningum um staðlað verklag fyrir litla og meðalstóra vinnustaði og skipulagsheildir þar sem öryggi, fagmennska og rétt viðbrögð skipta máli.
Skjölin eru þróuð af Þjónustuveitunni og sérstaklega hönnuð til að styðja notendur við að uppfylla lög og reglur, gæðastaðla og almennar kröfur um öryggi og innra eftirlit.
instaDoc

instaDoc eru hágæða skjöl og tilbúnir ferlar þróað af Þjónustuveitunni fyrir allar skipulagsheildir þar sem öryggi, fagmennska og skýrir ferlar skipta máli.
-
Viðbragðsáætlanir: Skýrir, tilbúnir ferlar sem tryggja rétt viðbrögð þegar á reynir. Byggja á leiðbeiningum frá opinberum aðilum.
-
Innra eftirlit: Tilbúin skjöl sem einfalda vöktun og tryggja samræmi við gæða- og öryggiskröfur.
-
Stuðningseyðublöð: Einföld skjöl til að gera vakthafandi starfsmönnum kleift að skrá atvik og frávik á markvissan hátt, og stjórnendum að öðlast meiri yfirsýn yfir tegundir og fjölda atvika og áhrif þeirra.
-
Sérsnið: Öll instaDoc skjöl eru fáanleg með eigin vörumerki og öðrum smávægilegum breytingum á orðalagi. Pantaðu sérsmíði hér fyrir neðan og veldu "Sérsnið á instaDoc skjali" í tegund skjals.
Sérsmíði
Ef þörf er á sérstöku skjali til að uppfylla sérstakar þarfir þá er hægt að panta sérsmíðuð skjöl í Skjalabúðinni.
Fyrirkomulagið
-
Þú smellir á hnappinn hér að neðan og færir inn umbeðnar upplýsingar.
-
Þú færð verðtilboð innan 3ja sólarhringa.
-
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu.
-
Hafnir þú tilboðinu er pöntunin afbókuð án frekari skuldbindinga.
-
Samþykkir þú tilboðið mun þér berast greiðsluhlekkur í tölvupósti sem þarf að greiða innan 3ja sólarhringa.
-
Sé greiðsluhlekkurinn ógreiddur á 4. degi er pöntunin afbókuð án frekari skuldbindinga.
-
Þegar greiðslan berst er pöntunin staðfest og sett á framleiðsluáætlun.
-
Umfang verkefnis og almennt verkefnaálag ræður afgreiðslutíma pantana, sem getur verið allt að 4 vikur.
-
Þegar skjalið er tilbúið hefurðu 7 daga til að gera athugasemdir og óska eftir lagfæringum til að fínpússa skjalið nákvæmlega eins og þú vilt hafa það.
Smellið á hnappinn til að panta sérsmíðað skjal.
Skilmálar vefverslunar
Upplýsingar
-
Allar upplýsingar á vef Skjalabúðarinnar um vörur, vörulýsingu, verð og annað eru birtar með fyrirvara um villur.
Vöruafhending
-
Allar vörur í Skjalabúðinni eru á rafrænu formi og afhentar sjálfkrafa með tölvupósti um leið og gengið hefur verið frá kaupum.
Vöruskil
-
Allar vörur í Skjalabúðinni eru á rafrænu formi og því ekki hægt að skila þeim.
Gölluð vara
-
Öll skjöl í Skjalabúðinni sem merkt eru instaDoc eru gæðatryggð.
-
Finnir þú galla í slíku skjali geturðu óskað eftir 100% endurgreiðslu.
Verð
-
Vöruverð getur breyst án fyrirvara. Það verð sem í gildi er þegar gengið er frá kaupum á körfu í netverslun er rétt verð vörunnar hverju sinni.
Virðisaukaskattur
-
Verð í vefverslun eru gefin upp án vsk. Virðisaukaskattur reiknast ofan á heildarverð þegar gengið er frá kaupum.
-
Viðskipti í Skjalabúðinni verða án vsk út ágúst '26 og hefst innheimta virðisaukaskatts þann 1. september 2026.
Takmörk á notkun instaDoc skjala
-
Kaupandi instaDoc skjals eignast skránna og getur vistað hana á sínu tæki.
-
Þegar skráin hefur verið vistuð eru engin takmörk fyrir því hversu oft er hægt að prenta hana.
-
instaDoc skjöl er ekki leyfilegt að endurselja eða dreifa til þriðja aðila.
-
Ekki má fjarlægja eða fela instaDoc merki á útprentuðum skjölum.
-
instaDoc skjöl er ekki leyfilegt að birta opinberlega á eigin vef, samfélagsmiðlum eða annars staðar án tilvísunar í Skjalabúðina.
Lagalegur fyrirvari
-
instaDoc skjöl er hönnuð til almennra nota við almennar aðstæður.
-
Kaupandi ber ábyrgð á að sannreyna að skjalið henti hans rekstri.
-
Notkun skjala og meðfylgjandi ferla og útfærsla þeirra er á ábyrgð notenda.
-
Frí skjöl eru skjöl sem eru gefin út af opinberum aðilum og er innihald þeirra og efni á ábyrgð útgefanda.
-
Skjalabúðin ábyrgist ekki að vera ávallt með nýjustu útgáfur af fríum skjölum í netverslun.
-
Skjalabúðin ber ekki ábyrgð á tjóni eða skaða sem kann að hljótast af notkun instaDoc eða frírra skjala.






Fagleg skjöl. Skýrir ferlar. Minna vesen.
Fylgstu með Skjalabúðinni á samfélagsmiðlum
Skjalabúðin er í eigu Þjónustuveitunnar



































































































