top of page
Lógó 2505 án bakgrunns.png
Skjalabúðin m.mynd hvítt á bláu.jpg

 

Gæðatrygging Þjónustuveitunnar tryggir þér 100% endurgreiðslu á námskeiðsgjaldi ef þú ert ekki fullkomlega ánægður með upplifun þína á námskeiði hjá Starfsframa.

Kynntu þér nánar skilmála og leiðbeiningar hér fyrir neðan áður en þú virkjar trygginguna.

 

Gæðatrygging Þjónustuveitunnar tryggir þér 100% endurgreiðslu á verði instaDoc skjals sem þú finnur galla í.

Kynntu þér nánar skilmála og leiðbeiningar hér fyrir neðan áður en þú virkjar trygginguna.

 

Skilmálar þessir gilda um skjöl frá Skjalabúðinni sem merkt eru instaDoc í neðra horni.

​​​

  1. Gæðatrygging gildir ekki fyrir skjöl sem gefin eru út af þriðju aðilum eða önnur skjöl sem EKKI eru merkt instaDoc.
     

  2. Gæðatrygging tekur sjálfkrafa gildi þegar greitt er fyrir instaDoc skjal eða skjalapakka sem inniheldur instaDoc skjöl.
     

  3. Ef þú finnur galla í skjalinu skv. nánari lýsingu hér að neðan, þá getur þú krafist fullrar endurgreiðslu á verðinu sem þú greiddir fyrir skjalið sem gallinn fannst í með því að virkja Gæðatrygginguna.
     

  4. Virkja þarf trygginguna og leggja fram endurgreiðslukröfu eins fljótt og kostur er eftir að kaupum lýkur eða innan 7 daga. Gæðatrygging fellur sjálfkrafa úr gildi 7 dögum eftir kaup hafi ekki borist krafa um endurgreiðslu.
     

  5. Þegar þú leggur fram endurgreiðslukröfu þarftu að gefa upp kennitölu og bankareikningsnúmer þess sem greiddi fyrir gallaða skjalið, fullt heiti skjalsins eins og það kemur fram í netverslun og stutta lýsing á gallanum.
     

  6. Endurgreiðslur eru millifærðar á bankareikning innan þriggja sólarhringa frá því að krafa berst. Endurgreiðslukrafan þín þarf því jafnframt að innihalda nafn, netfang og bankareikningsnúmer greiðanda.

Hvað er galli í skjali?

  • Innsláttar- og stafsetningarvillur.

  • Punktar og kommur eða önnur merki þar sem þau eiga ekki að vera.

  • Vantar punkta, kommur eða önnur merki þar sem þau eiga að vera.

  • Auð síða í pdf-skjali.

  • Ósamræmi í leturgerð eða leturstærð innan skjalsins.

  • Texti klipptur eða skiptist á rangan hátt milli lína.

  • Þýðingarvilla eða ósamsvarandi texti milli tungumála innan skjalsins.


​​​​

Skilmálar

 

Skilmálar þessir gilda um námskeið á vegum Starfsframa.

​​​

  1. Gæðatrygging gildir ekki fyrir hópa.
     

  2. Gæðatrygging tekur sjálfkrafa gildi þegar greitt er fyrir örnámskeið.
     

  3. Ef upplifun þín á námskeiðinu stóðst ekki væntingar þínar getur þú krafist fullrar endurgreiðslu á námskeiðsgjaldinu með því að virkja Gæðatrygginguna.
     

  4. Virkja þarf trygginguna og leggja fram endurgreiðslukröfu eins fljótt og kostur er eftir að námskeiði lýkur eða innan 24 klst. Gæðatrygging fellur sjálfkrafa úr gildi 24 klst. eftir að námskeiði lýkur hafi ekki borist krafa um endurgreiðslu.
     

  5. Þegar þú leggur fram endurgreiðslukröfu þarftu að útskýra hvaða þættir drógu úr upplifun þinni og hvað hefði þurft til að upplifun þín hefði verið nær væntingum.
     

  6. Endurgreiðslur eru millifærðar á bankareikning innan þriggja sólarhringa frá því að krafa berst. Endurgreiðslukrafan þín þarf því að innihalda nafn, netfang, kennitölu og bankareikningsnúmer.
     

  7. Til að koma í veg fyrir misnotkun á sjóðum stéttarfélaga með þessu úrræði er ekki gefinn út reikningur fyrir greiðslu námskeiðsgjalds fyrr en tveimur sólarhringum eftir að námskeiði er lokið, hafi krafa ekki borist um endurgreiðslu. Útgefnir reikningar eru sendir samdægurs í tölvupósti til allra þátttakenda sem ekki hafa farið fram á endurgreiðslu.
     

  8. Sé Gæðatrygging virkjuð og þátttakandi fær fulla endurgreiðslu á námskeiðsgjaldi skv. skilmálum þessum, verður enginn reikningur gefinn út fyrir námskeiðsgjaldinu.
     

  9. Þátttakandi getur hvenær sem er farið fram á að fá útgefinn reikning fyrir greiddu námskeiðsgjaldi en afsalar sér þá um leið Gæðatryggingu sem fellur niður þegar reikningur er gefinn út. ​
    ​​​​

bottom of page