top of page
A1 Markviss starfsferill.png


MARKVISS STARFSFERILL

Lærðu á 60 mínútum að búa þér til starfsferilsáætlun

og teikna upp leiðina að þinni draumaframtíð

​

​​

Fullt verð kr. 29,900

​Bestu kjörin bjóðast þátttakendum í Rýnihóp Þjónustuveitunnar:
 

  • Eitt námskeið frítt eða

  • Tvö námskeið á kr. 11,960

 

Kynntu þér nánar

afslætti og tilboð

  • Eru að koma aftur á vinnumarkað eftir hlé.​
     

  • Eru að endurmeta valkosti og íhuga nýjan starfsferil.
     

  • Vilja auka forskot sitt á vinnumarkaði.​​

​​​​​

  • ​Eru að ljúka námi og undirbúa sig fyrir atvinnulífið.
     

  • Eru komin á vinnumarkað en vita ekki hvert þau stefna.
     

 

Örnámskeið fyrir einstaklinga á öllum aldri sem:

​

 

Skráning​

​

Næstu námskeið hefjast sumarið 2027.​

​

Smelltu á hnappinn til að fá tilkynningu þegar skráning hefst.

​

100% endurgreiðsla ef ...

...upplifun þín á námskeiði hjá Starfsframa er ekki fyllilega í samræmi við væntingar.

Smelltu á hnappinn til að kynna þér nánar skilmála og leiðbeiningar um gæðatryggingu.

 


Á þessu námskeiði lærir þú

​​

  • Að koma auga á eigin styrkleika, getu og gildi og önnur persónuleg einkenni í eigin fari og öðlast þannig aukna sjálfsvitund og sjálfþekkingu.​

​​​

  • Að skilgreina draumastarfið út frá persónulegum þáttum eins og áhugasviði og styrkleikum, sem eykur líkur á árangursríkum starfsferli.

​​

  • Að gera starfsferilsáætlun til að skipuleggja eigin starfsferil og finna hagkvæmustu leiðina í draumastarfið.

​​

  • Að afla upplýsinga um nauðsynlega menntun eða þjálfun fyrir draumastarfið.

​​

  • Að marka þér stefnu sem leiðir þig á sem skilvirkastan hátt í átt að draumastarfinu.

​​

  • Að setja þér markmið sem hjálpa þér að velja réttu skrefin í átt að þinni draumaframtíð og raungera stefnuna.

​​


MARKMIÐ

​

​Markmiðið með þessu námskeiði er að þú lærir að skilgreina draumastarfið út frá eigin styrkleikum, gildum og áhugasviði, og móta þinn eigin starfsferil.

​

Að námskeiðinu loknu verður þú tilbúinn til að semja þína eigin starfsferilsáætlun og stíga næstu skref inn í þína draumaframtíð.

​


FYRIRKOMULAG

​Örnámskeiðið Markviss starfsferill er í fimm hlutum sem byggja á fimm nauðsynlegum skrefum við gerð starfsferilsáætlunar:

​

  1. Sjálfsmat
    Svarar spurningunni: Hver er ég? 
     

  2. Draumastarfið
    Svarar spurningunni: Hvað vil ég?
     

  3. Menntun
    Svarar spurningunni: Hvað þarf ég að kunna?
     

  4. Stefnumótun
    Svarar spurningunni: Hvaða leið er best að fara?
     

  5. Markmiðasetning
    Svarar spurningunni: Hvernig kemst ég þangað?

​

Í hverjum hluta er farið yfir gagnleg verkfæri og aðferðir sem þú getur beitt til að finna réttu svörin við þessum spurningum fyrir þig.

​

Námskeiðið í heild tekur um 90 mínútur en gerð starfsferilsáætlunar tekur lengri tíma en það og þú munt ekki hafa tíma til að ljúka þeirri vinnu á meðan námskeiðið stendur yfir.

 

Gefðu þér 1-4 vikur í að gera þína eigin starfsferilsáætlun eftir að námskeiðinu lýkur og búðu þig undir að gera breytingar og uppfærslur á henni nokkrum sinnum á lífsleiðinni.

 

Starfsferillinn er jú ævistarfið þitt og því ætti starfsferilsáætlunin að vera hluti af vopnabúrinu þínu allan starfsferilinn.

​​


INNIFALIÐ

Innifalið í námskeiðinu er:

​​

  • Námsefni
     

  • Rauntíma leiðsögn frá leiðbeinanda.
     

  • Fjöldi verkfæra og hjálpargagna sem létta þér lífið.
     

  • Slóðir á allar helstu vefsíður sem þú þarft að vita af þegar þú gerir starfsferilsáætlun.
    ​​

​

Kynntu þér einnig

 

Fræðsluþjónustan ​

Lógó Starfsframa á gagnsæjum bakgrunni
Lógó Þjónustuveitunnar með heiti í plómu á hvítum bakgrunni

er í eigu Þjónustuveitunnar​

​

 

Vertu með Starfsframa á samfélagsmiðlum​​

  • Facebook

© 2026 Þjónustuveitan ehf. Allur réttur áskilinn.
 
bottom of page