
Markviss starfsferill
Lærðu á 90 mínútum að skilgreina draumastarfið og búa þér til starfsferilsáætlun
Ör-námskeið fyrir einstaklinga á öllum aldri sem:
-
Eru að ljúka námi og undirbúa sig fyrir atvinnulífið.
-
Eru komin á vinnumarkað en vita ekki hvert þau stefna.
-
Eru að koma aftur á vinnumarkað eftir hlé.
-
Eru að endurmeta valkosti og íhuga nýjan starfsferil.
-
Vilja auka forskot sitt á vinnumarkaði.
Á þessu námskeiði lærir þú
-
Að koma auga á eigin styrkleika, getu og gildi og önnur persónuleg einkenni í eigin fari og öðlast þannig aukna sjálfsvitund og sjálfþekkingu.
-
Að skilgreina draumastarfið út frá persónulegum þáttum eins og áhugasviði og styrkleikum, sem eykur líkur á árangursríkum starfsferli.
-
Að gera starfsferilsáætlun sem er skilvirkt ferli til að skipuleggja eigin starfsferil og finna hagkvæmustu leiðina í draumastarfið.
-
Að afla upplýsinga um nauðsynlega menntun eða þjálfun fyrir draumastarfið og meta ólíka valkosti.
-
Að marka þér stefnu sem leiðir þig á sem skilvirkastan hátt í átt að starfsframa.
-
Að setja þér markmið sem raungera stefnuna með því að hjálpa þér að velja réttu skrefin í átt að stóra takmarkinu.
Markmið
Markmiðið með þessu námskeiði er að þú lærir að skilgreina draumastarfið út frá eigin styrkleikum, gildum og áhugasviði, og móta þinn eigin starfsferil. Að námskeiðinu loknu verður þú tilbúinn til að semja þína eigin starfsferilsáætlun og stíga næstu skref inn í þína draumaframtíð.
Fyrirkomulag
Þetta námskeið er í fimm hlutum sem byggja á fimm nauðsynlegum skrefum í gerð starfsferilsáætlunar:
-
Sjálfsmat
Svarar spurningunni: Hver er ég? -
Draumastarfið
Svarar spurningunni: Hvað vil ég? -
Menntun
Svarar spurningunni: Hvað þarf ég að kunna? -
Stefnumótun
Svarar spurningunni: Hvaða leið er best að fara? -
Markmiðasetning
Svarar spurningunni: Hvernig kemst ég þangað?
Í hverjum hluta er farið yfir gagnleg verkfæri og aðferðir sem þú getur beitt til að finna réttu svörin við þessum spurningum fyrir þig.
Námskeiðið sjálft tekur um 90 mínútur þar sem farið er ítarlega í hvern hluta og þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga í lok hvers hluta.
Gerð starfsferilsáætlunar tekur lengri tíma og þú munt ekki hafa tíma til að ljúka þeirri vinnu á meðan námskeiðið stendur yfir. Gefðu þér 1-4 vikur í að gera þína eigin starfsferilsáætlun eftir að námskeiðinu lýkur og búðu þig undir að gera breytingar og uppfærslur á henni nokkrum sinnum á lífsleiðinni. Starfsferillinn er jú ævistarfið þitt og því ætti starfsferilsáætlunin að vera hluti af vopnabúrinu þínu allan starfsferilinn.
Skráning
Opnað verður fyrir skráningu á námskeiðið síðla sumars 2025 og verða fyrstu námskeiðin kennd á haustmánuðum 2025. Ef þú vilt fá tilkynningu þegar opnað verður fyrir skráningu, þá geturðu pantað áskrift að fréttabréfi Þjónustuveitunnar*.
*Þjónustuveitan sendir aðeins út fréttabréf þegar eitthvað sérstakt er að frétta (eins og þegar opnað er fyrir bókanir á nýrri þjónustu), eða að hámarki 1-2 sinnum á ári.
Innifalið
Innifalið í námskeiðinu er:
-
Rauntíma leiðsögn frá leiðbeinanda.
-
Fjöldi verkfæra og hjálpargagna sem létta þér lífið.
-
Hlekkir á allar helstu vefsíður sem þú þarft að vita af þegar þú gerir starfsferilsáætlun.
-
Ævilangur aðgangur að námsefni og öllum framtíðar uppfærslum.
Rýnihóp Þjónustuveitunnar
frítt prufunámskeið LAUGARDAGINN 28. júní 2025
Fjarfundur í rauntíma:
Markviss starfsferill kl. 11:00 - 12:30
Viljir þú prófa frítt prufunámskeið þá þarftu aðeins að skrá þig í Rýnihóp Þjónustuveitunnar, en þátttakendur rýnihópsins fá öðru hvoru boð um að taka þátt í léttum spurningakönnunum eða að prófa nýja þjónustu án endurgjalds.
Þegar þú ert búinn að skrá þig í rýnihópinn, þá smellirðu á hnappinn hér fyrir neðan til að skrá þig á prufunámskeið. Athugaðu að þú getur aðeins prófað annað hvort námskeiðið án endurgjalds. Viljir þú prófa bæði þá stendur þér til boða 50% afsláttur af seinna prufunámskeiðinu.
Innifalið
Innifalið í þessu námskeiði er:
-
Rauntíma leiðsögn frá leiðbeinanda
-
Fjöldi gagnlegra verkfæra og hjálpargagna sem létta þér lífið
-
Hlekkir á allar helstu vefsíður sem þú þarft að vita af þegar þú gerir starfsferilsáætlun
-
Ævilangur aðgangur að námsefni og öllum framtíðar uppfærslum

Fræðsluþjónustan
er í eigu Þjónustuveitunnar
Allur réttur áskilinn © 2025 Þjónustuveitan ehf. | kt. 530519-0740 | s. 772-5950 | thjonusta@thjonusta.is